• Frí heimsending af pöntunum yfir 12.000kr. •

Teppaprjón: 42 uppskriftir fyrir kríli og krakka

Teppaprjón: 42 uppskriftir fyrir kríli og krakka

Verð
2.890 kr
Verð
Útsöluverð
2.890 kr
Einingarverð
per 
Availability
Uppselt

Höfundar: Guðrún S.Magnúsdóttir, Þuríður Magnúsdóttir

 

Teppaprjón geymir prjónauppskriftir að litríkum og fallegum teppum fyrir yngstu börnin. Teppin eru afar fjölbreytt og hægt að velja um fjölmörg munstur og prjónaaðferðir. Uppskriftirnar eru einfaldar og skýrar og henta byrjendum jafnt sem lengra komnum.

Guðrún S. Magnúsdóttir og Þuríður Magnúsdóttir eru höfundar Teppaprjóns og er bókin afrakstur áralangs samstarfs þeirra systra. Þetta er fyrsta bók Þuríðar en Guðrún hefur áður sent frá sér bækurnar Sokkaprjón, Húfuprjón, Vettlingaprjón og Treflaprjón, sem notið hafa mikilla vinsælda.

Teppaprjón er byggð upp á sama hátt og fyrri bækur Guðrúnar og eins og áður vann fjölskylda hennar bókina með þeim höfundunum.

Teppaprjón – leiðrétting Bls. 36: Fyrst á réttunni, alveg eins á röngunni Fitjið upp 153 L en ekki 154 L.