• Frí heimsending af pöntunum yfir 12.000kr. •

Leikskólaföt

Leikskólaföt

Verð
3.790 kr
Verð
Útsöluverð
3.790 kr
Einingarverð
per 
Availability
Uppselt

Bókin Leikskólaföt frá Prjónafjelaginu geymir uppskriftir að fallegum flíkum handa börnum á leikskólaaldri, bæði fyrir byrjendur og lengra komna prjónara – sumar einfaldar og hefðbundnar en aðrar flóknar og frumlegar.

Flíkurnar henta íslenskum aðstæðum; markmiðið er að þær séu hlýjar og þægilegar, að hægt sé að vera í þeim bæði úti og inni, og ekki síst að börnin geti klætt sig í þær sjálf.

Flestar uppskriftirnar miðast við að nota megi tvenns konar garn, annars vegar innflutt og hins vegar íslenska ull sem er bæði hlý og vönduð, og oftast ódýrari kostur.